Loading home…

Þann 25. maí 2023 hélt Vocal Project tónleika í Norðurljósasal Hörpu, sem báru heitið "Goðsagnir II: Á ystu nöf" Efnisskrá tónleikanna, eins og fyrri tónleikanna í Salnum 2018, var tónlist eftir goðsagnir poppkúltúrsins. Dolly Parton, Whitney Houston, Guns N’ Roses, Led Zeppelin, Elton John og fleiri góðkunningjar pabbarokkara og diskódíva rötuðu á efnisskránna, og voru lög þeirra flutt við alvöru hávaðaundirleik húsbandsins, sem að þessu sinni var skipað Guðmundi Stefáni Þorvaldssyni á gítar, Sam Pegg á bassa, Kjartani Valdemarssyni á hljómborð og Jóni Geir Jóhannssyni á trommur. Sem fyrr er Gunnar Ben stjórnandi kórsins, en hann er Mývetningur, óbóeigandi og spilar stundum þjóðlagametal.